12/08/2005

Það er svo gaman að vera tveggja vikna gömul

Hjördís með litlu á góðri stundu

Bara gaman

Afsakið risar, gæti ég fengið tommu þögn svo ég geti farið að sofa, takk fyrir...

Tveggja vikna gömul 1840 gramma stúlka var hress í dag þrátt fyrir að foreldrar væru á þönum. Hún er algjör snillingur þessi dama, hún slappaði vel af eins og venjulega og er farin að drekka 41 ml á þriggja tíma fresti. Það er sennilega ágætt að flatmaga og fá mjólkina beint í magann. Svo er maður rifinn upp og bleyan tekinn og ný sett á í staðinn, lúxus.....

Klementína er búin að fá allskonar gjafir upp á síðkastið, föt og hitt og þetta, miklar þakkir fyrir það..............þið eruð yndisleg...

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Er til fallegra bros.
Kveðja, Harpa

20:29  
Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Maggi og Hjördís...til hamingju með litlu gullfallegu prinsessuna!! Hún er alveg yndisleg..Hafið það sem allra best..Sjáumst vonandi í nánustu framtíð..Fjölskyldan í Glasgow

14:50  
Blogger Maggir said...

Takk og bestu kveðjur til Glasgow frá okkur hérna á spítalanum...hafið þið það sem allra best í ævintýrinu..

maggi&hjördís&klementina

19:00  

Skrifa ummæli

<< Home